|
|
17.02.2007 23:36:32 / elininga
Vá hvað það er kominn tími fyrir nýja færslu.
Er heima hjá systur hans pabba í Norðlingaholti að passa. Börnin
sofnuðu fyrir 2 klst og ég er búin að vera að læra síðan! Mjög
sérstakt laugardagskvöld.
En það er ansi mikið í gangi í huga mínum þessa dagana. Hvað á
ég að gera í haust? Fara á Bifröst í HHS? Finna vinnu og vinna í
ár? Finna vinnu og vinna í hálft ár og svo fara í nokkra mánuði til
Ástralíu?
OK það sem mig dreymir um að gera er þetta:
Þegar ég kem heim frá Marmaris 8. júní vinn ég í svona 2 vikur
og svo koma 2 vinir mínir frá Ástralíu í heimsókn í svona viku. Fer
með þau hringinn og það verður ýkt gott veður allan tímann. Svo fer
ég með þeim á Hróarskeldu og Radiohead verða að spila og ég fæ
aftur bestu tilfinningu í heimi. Svo kveð ég þau Kem heim og
vinn eins og hestur í nokkra mánuði til að borga fyrir þessi
ferðalög. Fer til Vancouver í nóvember að heimsækja stelpu sem var
skiptinemi á sama tíma og ég. Þar verður vinkona mín frá Ástralíu
sem ég fór með á Hróarskeldu að enda heimsreisuna sína þannig
ég fer með henni til Ástralíu í desember. Fer á brimbretti á
hverjum degi (það verður sumar) og það verður ýkt gaman. Svo þegar
jólin eru búin fer ég með Bonnie til Sydney og fæ vinnu í
dýragarðinum þar og vinn þar í svona 3-4 mánuði. Kem svo heim og
nýt sumarsins og fer í Bifröst um haustið. Ahh verð á Bifröst í 2
ár og tek svo síðasta árið í Japan og læri japönsku.
Er þetta skynsamlegt eða á ég ekki að taka mér pásu á náminu í
ár? Ég er ekki að taka mér pásu til þess að vinna, heldur til þess
að ferðast. Hver veit nema að ég finni e-n kærasta þegar ég byrja í
háskóla og hann vill ekki að ég ferðist svona mikið? Einmitt. Ekki
sniðugt að geyma þetta!
En ahh ætla að halda áfram að læra,, varð að koma þessum
pælingum á framfæri fyrir þessa 5 sem skoða síðuna á dag 
»
29.12.2006 07:41:50 / elininga
Systir langömmu minnar: „Þú ert
alveg eins og hann pabbi þinn!“
Langafi: „Já, greyið að þurfa að
lifa með þessu.“
Afi er bara fyndnastur og bestur
og ég elska að hlusta á sögurnar hans um gamla daga.
Ómetanlegt.
En árið 2006.
Phew merkilegt ár. 19 ára! Fór 5x til útlanda. Fór í framboð. Lifði
lífinu.

En fyrsta utanlandsferðin var til
Ástralíu í apríl. Stoppaði í nokkra tíma bæði í London og Melbourne
og byrjaði að kaupa í plötusafnið mitt sem er orðið nokkuð
myndarlegt núna! En þessi ferð var yndisleg. Einkenndist af
samverustundum með vinum, bíómyndaglápi, ölvun, teppahreinsun,
knúsum, tárum og vellíðan. Kvaddi alla með bros á vör því það er
svo fáranlega auðvelt að ferðast og allir að koma til Evrópu og ví
gaman.

Svo var það ferðin til Ítalíu. Fór
með pabba, bróður mínum, föðurbróður, dóttur hans, og tveimur nýju
fjölskyldumeðlimunum; fósturmömmu og –systur. Frábær ferð sem
reyndi mikið á mig og bróður minn, erfitt fyrir okkur að vera svona
ofboðslega mikið saman og að sjá pabba með konu sér við hlið því að
við erum búin að hafa hann útaf fyrir okkur svo lengi! Fórum í
dagsferðir til Mílanó og Feneyja sem var ómetanlegt og auðvitað
skelltum við okkur í tívólí til að losa um adrenalínið.

Svo í lok ágúst, rétt áður en
Sonja fór til Frakklands, og rétt áður en ég byrjaði síðasta árið
mitt sem framhaldsskólanemi, skelltum við okkur til Skotlands í
menningarferð. Já við fórum á Dandy Warhols tónleika sem komu mjög
á óvart. Fórum fullar í bíó og borðuðum vínber, ekki sniðugt og
sérstaklega ekki á Nacho Libre sem var alls ekki skemmtileg. Fórum
líka á Scanner darkly en vorum bara léttar þá og nutum því þeirrar
ferðar mjög mikið. Borðuðum mikið af pizzu og snakki. Fórum á 3gja
klst. langt Shakespeare leikrit. Fórum á djammið í Edinborg með
Bryndísi og Agli og lentum á Rocky Horror kvöldi sem var bara
æðislegt. Sáum myndina örugglega svona 4x það kvöld! Og enduðum svo
ferðina á tónleikum með Radiohead í blankalogni þar sem að
enginn annar en Beck hitaði upp. Stund lífs míns. Það þarf
vart að taka það fram að við versluðum af okkur rassgatið eins og
maður á að gera þegar maður er erlendis. Yndisleg ferð og ég hlakka
til að fara í aðra svona með þér elsku Sonja mín!

Um miðjan nóvember fór ég ásamt
föður mínum og bróður uppá flugstöð og við áttum að fljúga til
London kl 4. Vorum í flugtaki þegar vélin snarhemlaði og við
dúsuðum á flugstöðinni í 8 klst að bíða eftir vél frá London að
bjarga okkur. En ferðin var frábær og það var yndislegt að koma til
London með pabba og Daníel eftir að hafa átt svo margar frábærar
stundir þar þegar pabbi bjó þar. Fórum á Queen söngleik og sáum
Madonnu í bíó ásamt því að versla nóg.

Eftir prófin þann 16. desember,
eftir klst. svefn, fór ég uppá flugstöð með leigubíl (leyfði mömmu
að sofa!) og lagði af stað til Kaupmannahafnar að hitta hana Evu
sem var búin að vera í DK í 14 vikur. Áttum saman góðar stundir þar
og við eyddum mestum tíma í að þræða strikið og kíktum aðeins á
næturlífið sem var arfaslakt að mínu mati! En tívolíið var kósý
þótt að tækin hafi ekki náð að hræða mig. Takk fyrir frábæran tíma
Eva!

En þetta ár hefur einkennst
semsagt af ferðalögum, vinnu til að eiga fyrir þeim, frábærum
tímum, erfiðum tímum, fimmtudagsdjammi, og svo mætti lengi
telja.

Svo er það bara gamlárskvöld og
valið hjá mér stendur á milli 90s balli á Nasa eða partýi á
Yello….. Hmm.

Vs.

Ég lít mjög björtum augum á
framtíðina af því að ég veit að ég þarf ekki að vera kvíðin útaf ég
veit ekki hvað ég vil læra.. Það er nóg annað að
gera!
Knús.
»
08.12.2006 20:36:24 / elininga
Þetta
sagði hann Eiður svo eftirminnilega í leikskólanum í dag. Þá
leiðrétti ein stelpa hann: ,,Nei allar stelpur eru prinsessur!"
Yndislegt!
En dagurinn í dag var mjög spes. Ákváðum að
fara í göngu að Elliðavatni og sjá hvort við gætum ekki gengið út á
vatnið. Með í för var ég og tveir aðrir leiðbeinendur ásamt 17
börnum. Þegar við vorum komin út í eyju í miðju vatni hringir sími
hjá samstarfskonu minni og þá var það aðstoðarleikskólastjórinn að
tilkynna okkur það að e-r hefði hringt í lögregluna og sagt að
leikskólabörn væru að ganga yfir vatnið. Þá eru heit svæði þarna
sem eiga að vera stórhættuleg og ísinn er mjög þunnur þar. Ég kom
alveg af fjöllum og vissi ekkert um þetta og við byrjuðum bara að
labba yfir ísinn að landi.. Þá kemur ein kona öskvaðandi út á ísinn
og talar við leiðbeinandann sem leiddi hópinn og kannaði aðstæður
(NB hún er jarðfræðingur). Og hún vissi allt um þetta og þess vegna
labbaði hún alltaf á undan okkur og hoppaði á ísnum og kannaði hvað
hann var þykkur (ég fylgdist með því og hann var a.m.k. 25-30 cm að
þykkt sem er slatti, held ég. Svo þegar konan var að fara, þá mæta
okkur tveir lögreglumenn við það leyti sem við erum að koma að
landi og þeir töluðu við jarðfræðinginn og allt var í góðu.
Börnunum fannst þetta bara gaman. Svo
löbbuðum við bara í góðu fjöri á leikskólann. Þegar við vorum komin
til baka spurði ég einn strákinn hvort að hann hefði e-ð talað við
lögguna, og hann sagði mér að hann hefði sagst hafa handtekið BARA
einn bófa! Pff algjör aumingi.
En ég bloggaði nú á þessum degi fyrir ári
síðan, en sjaldan er góð vísa of oft kveðin. Lengi lifi Lennon og
Morrisson!


Var í yoga
í gær og við hlustuðum á diskinn Paint the Sky with Stars með
Enya. Og ég vissi það ekki á þeim tíma, en ég heyrði byrjunina á
laginu Ready or Not með Fugees mér til mikillrar furðu, en þá kom
bara í ljós að þetta lag er upprunalega með Enya! (Heimildir:
Wikipedia)
Af þessu tilefni ætla ég að láta
lögin fylgja með, í boði radioblogclub:
Uppruninn
Svala útfærslan
Ekkert
meira sem ég hef að segja í bili, en stefni á 2-3 færslur á viku,
lofa öllu!
»
05.12.2006 21:29:44 / elininga
Jæja
allt í einu langaði mig svo að blogga. Hef svo mikið að hugsa um
þessa dagana, eins og alltaf. Ætla að reyna að gera þetta
áhugavert og skemmtilegt með myndum, því það bendir margt til
þess að þetta verður mjöööög langt.
En ég er semsagt búin í prófum, ekki
leiðinlegt. Og byrjaði að vinna á leikskólanum Hvarfi sem pabbi
minn rekur í Kópavogi í dag og það er bara best. Verð að vinna þar
fram að jólum og svo eftir áramót líklegast. En allavega þar fær
maður oft yndislegar spurningar, og er erfitt að halda andliti
alltaf, en þótt ótrúlegt megi virðast, þá tekst mér það alltaf! Í
dag var ég t.d. að fara út með alla strákana af deildinni sem ég
var á. Og það voru nánast allir búnir að kappklæða sig í
kuldagallana nema einn. Hann lá í gólfinu og ég skildi ekkert hvað
hann sagði. Ég bað hann að tala skýrt og þá heyrði ég að hann var
að segja í sífellu: ,,Styrmir er ekki vinur minn!" Og ég spyr hann
af hverju og hann endurtekur þetta bara aftur og aftur. En þess má
geta að Styrmir er einmitt á sömu deild. Það tók hann svona korter
að byrja að klæða sig af því Styrmir er ekki vinur hans, bara
best!
Svo heyrði ég eitt sem mér þótti mjög skondið
og áhugavert um daginn. E-r sagði e-m að ég borðaði bara kjöt þegar
amma eldaði e-n ákveðinn rétt með nautahakki?! Hahaha. Skil ekki
hvernig er hægt að halda það, þar sem ég hætti að borða nautahakk
löngu áður en ég hætti að borða kjöt, en já hér með leiðréttist það
ef e-r annar hefur heyrt það!

Er svona
hálfpartinn að gera þetta blogg til þess að gá hvort að e-r skoði
þessa síðu ennþá, sem ég efa stórlega, en það sakar ekki að
reyna!
En af því að ég er svo mikið
kvikmyndanörd þá ætla ég að auglýsa eina mynd sem að ég er
mjöööööög spennt að sjá og heitir Children of Men.

Þessi hönk
sem að átti svo andskoti skemmtilegan leik í Closer leikur
aðalhlutverkið og það trekkir að! En þessi mynd verður frumsýnd 1.
janúar og ég ætla pottþétt á hana af því ég verð í fríi þann dag í
fyrsta skipti síðan 2004. Sem er ekkert merkilegt, en jæja. Trailer
hér:
http://www.youtube.com/watch?v=cwsgkurfCjE
Ætla að segja þetta gott í bili,
jólahreingerningin verður að klárast!
»
22.04.2006 00:59:29 / elininga
Jaeja, tha er eg a leidinni
heim. Er i Singapore ad bida eftir tengifluginu minu til
London.
Eg get svarid thad, ad thetta
paskafri var thad besta til thessa. Eg var med ekkert serstakt
planad, hvad eg aetladi ad gera, hvar eg aetladi ad sofa. Bara
spontaneous. Og thad var aedi. Eg se mig alveg fyrir mer i
framtidinni i nami her. Eda e-d annad.
Ferdalagid er buid ad ganga
heldur brosulega til thessa. Fluginu minu var frestad fra Hobart i
Tasmaniu til Melbourne i gaerkvoldi. Og eg vissi ekki af thvi.
Thannig vid komum a flugvollinn og thurftum ad bida i toluverdan
tima eftir fluginu, vegna siendurtekinna seinkunna. Sem var agaett,
gaman ad geta eytt meira tima med ollum. Svo kom kvedjustundin, sem
var nu mikid betri en sidan, thvi ad eg veit ad eg a eftir ad hitta
svo morg af theim a naestunni. Vinkona ad fara til Italiu, vinur
til Pollands. Thannig mer leid ekki jafnilla og sidast thegar eg
vissi ekkert hvenaer eg myndi hitta thau. En eg helt hefdinni og
var sidust um bord. Lenti i Melbourne kl. 12, atti ad lenda thar
9.40pm. Velin min til Singapore atti ad fara kl. 12.50 og thad
tharf ad tekka sig inn klst fyrir brottfor. Thannig eg spretti i
gegnum allan fliugvollinn, skildi toskurnar minar eftir, og for og
sagdi folkinu sem tekkadi inn ad eg hafi verid ad lenda med flugi
sem ad hafi seinkad yfir 2 klst, og ad toskurnar minar vaeru ekki
komnar. Thau sogdu ad eg thyrfti ad vera komin med toskurnar eftir
4 minutur, sem var ogerlegt fyrir mig. En eg skildi eftir
flugmidinn, i theirri vissu ad thau myndu redda mer. Og svo var
thad. Eg var komin um bord i velina korteri fyrir brottfor, og fekk
ad heyra svona 17 sinnum thegar eg var ad labba i flugvelina, NB
med 3 starfsmenn flugvallarins med mer, leid eins og
hrydjuverkamanni. En ja eg var sidust um bord aftur. Ekki af
asetningi. En eg settist bara nidur, tok svefntoflur (natturulegar
vitaskuld) og svaf alla leid til Singapore.
Er spennt fyrir ferdalaginu
til London, thvi ad thad eru adeins 2 klst a milli fluganna minna
thar, og eg tharf ad skipta um terminal a einum staersta flugvelli
i heiminum. Spennandi. Ograndi. Ae eg er farin i ruglid. En thessi
sida mun vera daud thangad til ad annad verdur tilkynnt. Desember
2007 mun hun vonandi lifna aftur vid, hvad aetli gerist
tha?!
Aetla ad kaupa mer e-d
asiskt. Og leggja mig i e-n sofa herna. 4 klst i flugid mitt til
London.
Auf wiedersehen!
»
11.04.2006 23:16:28 / elininga
Hallo
hallo.
Svaka stud, buin ad hitta alla vini mina...
Og bara geggjad!
Vedrid er aedislegt og eg fer i klettaklifur
eftir smastund og svo fer eg ad surfa eftir thad.
Er buin ad vera halfveik sidan eg kom, held
ad thetta se "jet-lag" en eg var svo heppin ad fa ad sleppa vid
thad sidast.
Uuu veit ekki hvad meir skal segja, er a
bokasafninu i skolanum nuna, er buin ad vera ad fara i tima med
vinum minum, en nennti ekki nuna.
Nenni ekki meir,
gledilega paska!

»
08.04.2006 04:54:37 / elininga
Jaeja tha er eg komin til Astraliu,. magnad. Var i London i gaer
(fostudag) og for a Regent's Street og Oxford Street. For svo a
naesta posthus og sendi thad heim sem eg keypti. Svo klar. Flaug
svo til Singapore. Var thar i e-a 5 tima. Flugvelin sem vid attum
ad fara i var bilud, thannig ad vid thurftum ad skipta og fluginu
seinkadi um rumar 2 klst, thannig eg missti af Neighbours-tournum i
Melbourne, svekkjandi. Atti bara godan verslunardag i Melbourne,
eda nokkrar klst, og lek thann sama leik ad senda stuffid heim.
Fullt af pokkum til sjalfs mins thegar eg kem heim. Flugvelin min
fer til Tasmaniu eftir halftima, thannig eg aetla ad fara ad tia
mig. Er ad drepast ur kvefi, en thad er agaett. Veit ekki hvad
meira skal segja, mun blogga aftur a naestunni. I'm glad to be
back, ast fra Astraliu, Elin Inga!
»
25.01.2006 21:37:20 / elininga
Ég er alveg að fara að koma með rosalegt blogg.
En á meðan ætla ég að leyfa þeim örfáu sem að heimsækja þessa
síðu að njóta.
1.
Ég segi þér eitthvað
handahófskennt um þig
2.
Ég segi þér hvaða lag/mynd
minnir mig á þig
3.
Ég segi þér hvaða bragð
minnir mig á þig
4.
Ég segi þér fyrstu ljósu
minningu mína af þér
5.
Ég segi þér hvaða dýr þú
minnir mig á
6.
Ég spyr þig að einhverju sem
ég hef velt lengi fyrir mér um þig
Takk takk,
kveðja Elín
»
24.12.2005 15:13:51 / elininga
Gleðileg jól.

Njótið.
»
08.12.2005 21:22:03 / elininga

Get sagt með hreinni
samvisku að þetta sé flottasta par sögunnar.
25 ár síðan "maðurinn
sem var frægari en Jesús" dó.
Njótum þessa lags í
minningu hans:
Love is real,
real is love
Love is feeling, feeling love
Love is wanting to be loved
Love is touch, touch is love
Love is reaching, reaching love
Love is asking to be loved
Love is you
You and me
Love is knowing
We can be
Love is free, free is love
Love is living, living love
Love is needing to be loved
Er búin að vera að lesa þennan
texta:
http://www.crimelibrary.com/terrorists_spies/assassins/chapman/1.html#continue
Áhugavert.
Og auðvitað hefði þessi foli átt afmæli í
dag.

Og við skulum njóta þessa lags í tilefni
þess:
People are
strange when you're a stranger
Faces look ugly when you're alone
Women seem wicked when you're unwanted
Streets are uneven when you're down
When you're strange
Faces come out of the rain
When you're strange
No one remembers your name
When you're strange
When you're strange
When you're strange
People are strange when you're a stranger
Faces look ugly when you're alone
Women seem wicked when you're unwanted
Streets are uneven when you're down
When you're strange
Faces come out of the rain
When you're strange
No one remembers your name
When you're strange
When you're strange
When you're strange
When you're strange
Faces come out of the rain
When you're strange
No one remembers your name
When you're strange
When you're strange
When you're strange
P.S. titillinn á
lögunum kemur fram í 1. orðinu í fyrra laginu, en í fyrstu 3
orðunum í því seinna.
I love people that are
strange.
»
21.11.2005 19:55:54 / elininga
Ahh
Violent Femmes er svo mikil fjörhljómsveit. Og þetta lag; Add it
up er mjög skemmtilegt í hlustun.
Nóg að gera þessa dagana. Er
alveg besti körfuboltaþjálfari í sögu Keflavíkur með 20 stk. amk. á
hverri æfingu. Þær eru svo mikil æði. Er að fara með þær að keppa
næstu helgi, og það verður gist einhvers staðar í Grafarvogi.
Verður áhugaverð helgi sem endar með f**cking tónleikum aldarinnar.
Ójá Sigur Rós. Hversu lengi er maður búin að bíða eftir þessu
augnabliki? Lengi.
En ég var einmitt á White
Stripes tónleikum í gær. Mjög gaman, mér fannst vanta mörg lög, en
það er alltaf þannig, maður velur ekkert setlistann! Því miður.
Hefði gefið allt ef að þau hefðu tekið “In the cold, cold night“ og
“I'm bound to pack it up“. Og f**k hvað ég er hætt að vera í
kremjunni (e. mosh-pit) á tónleikum. Var alveg að fara yfir um í
gær vegna átroðnings fólks og einnar ákveðinnar stelpu sem söng svo
ÓTRÚLEGA hátt með að mér stóð ekki sama (NB ég syng með lögum á
tónleikum, en hef vit á því að syngja í þeirri tónhæð að nágrannar
mínir á tónleikunum heyri ekki í mér). Svo þegar tónleikarnir voru
u.þ.b. hálfnaðir tókum við Dögg þá ákvörðun að fara aftast og
dansa. Og það var bara bestast. En yfir heildina litið voru þessir
tónleikar svona 8,6 af 10.
En úhh, er að fara á einhvern
körfuboltaleik hjá stelpunum hér úr Kef og Grindó, svaka spennó.
Svo bíður slatti af lærdómi mín þegar ég kem heim. Namm. Svo gaman.
Prófin að koma. Úh.
Ætla að enda þessa laggóðu
færslu með lagi af besta disknum með White Stripes að mínu
mati;

A boys best
friend
I just don't fit in this place
their thoughts cast me out of here
their home has run out of space
my mind's already out of here
won't you come along dear?
won't you come along?
words that are spoke alone
phrases you will never hear
empty rooms and a telephone
that i will never use,never fear
I am all alone dear
I am all alone
My dogs come sit next to me
a pack of dogs and cigarettes
my only friends speak no words to me
but they look at me
and they don't forget
that a boy's best friend is his mother
or whatever has become his pet
P.S. Þessi færsla er tileinkuð Lilju Guðný
Magnúsdóttur sem er ástæðan fyrir að ég viti hvað White Stripes er!
Oooog hún á flottan afmælisdag.
»
08.11.2005 22:07:03 / elininga
7 hlutir sem ég ætla að
gera áður en ég dey:
-
Bjarga einhverjum úr
lífsháska.
-
Ættleiða barn úr vanþróuðu
landi.
-
Sjá 7 undur veraldar (1 down, 6 to go!
Sá Stonehenge í Englandi eitt sinn).
-
Hætta að vera hrædd við
skordýr.
-
Fara í
fallhlífarstökk.
-
Komast á Alþingi og vera sá sem allir
Sjálfstæðismenn hata (sbr. Steingrímur J.).
-
Búa í öllum heimsálfum veraldar, nema
kannski Suðurskautslandinu.
7 hlutir sem ég get
ekki gert:
-
Reykt. Ekki séns. Veit ekki af hverju.
Blessun?
-
Málað mig. Glötuð
gella!
-
Kysst einhvern sem ég þekki
ekki.
-
Valið uppáhaldslagið
mitt.
-
Hlustað á lag sem ég kann án þess að
syngja með. Ogh svo glötuð.
-
Verið fyndin að annarra
mati.
-
Sagt að Davíð Oddsson sé
töff.
7 hlutir sem ég get
gert:
-
Verið með húmor fyrir sjálfri mér, sem
er mjög erfitt.
-
Keyrt í hálku og borðað pizzu og skipt
um lag á sama tíma. Lærði það í gær.
-
Fengið kennara á mitt band, án þess að
vera ógeðslega mikil kennarasleikja.
-
Skrifað nafnið mitt á japönsku.
Konnichi wa.
-
Prjónað. Svo mikil
kelling.
-
Borðað popp allan daginn án þess að fá
ógeð.
-
VERIÐ
GRÆNMETISÆTA!
7
hlutir sem heilla mig við hitt
kynið:
-
Vizka.
-
Kunna á e-ð
hljóðfæri.
-
Kunna að syngja..... AAAAA bara
geggjað.
-
Að geta talað um allt og
ekkert.
-
Flott, sítt hár. Helst dökkt. Krullur
eru plús.
-
Múúss að kunna að sauma, hversu
krúttlegt?!?!
-
HÚMOR.
7
frægir karlmenn sem
heilla mig:
-
Gavin Rossdale. (Helvítis Gwen
Stefani!)
-
Jude Law.
-
Ewan McGregor.
-
Sean Penn.
-
Thom Yorke.
-
Nicolas Cage.
-
Ronan Keating. (Útaf fokkin geggjaða
írska hreimnum.)
-
Nick McCarthy (Gítarleikarinn í Franz
Ferdinand.)
7 orð sem ég segi
oftast:
-
Nice.
-
Fokkin.
-
Fair Dinkum! (Með hausnum og
öllu)
-
Nei.
-
Magnað. (Tileinkað þér
Valgerður)
-
Geggjað.
-
Damn.
7 manneskjur sem ég
ætla að kitla:
-
(1-3)Pretzel-gengið; Pési, Jói,
Kjarri.
-
Katrín
Pétursdóttir.
-
Eva Sólveig
Þórðardóttir.
-
Harpa
Jóhannsdóttir.
-
Björn Geir
busakrútt.
Elska
lífið, blogga e-ð eitrað á
næstunni.
»
17.10.2005 22:54:35 / elininga
Boohoo, langt síðan síðast. Meira
en mánuður, nýtt met? Vona það.
Ég er bara ekkert að nenna
þessu, veit ekki alveg hvað það er sem drífur mig áfram? Von um að
gleðjast við lestur á þessu dásamlega bloggi í framtíðinni? Má
vera.
Þarf bara aðeins að tjá mig
um atburði sem átt hafa sér stað í kollinum á mér.
Var að velta því fyrir mér
áðan, þegar ég var að labba heim úr tónfræði í þessari dásamlegu
rigningu, gotta love it. Af hverju að svona stelpur sem taka þátt í
fegurðarsamkeppnum, helst í USA, segi alltaf að heitasta ósk þeirra
sé heimsfriður? Þótt að ég sé einungis búin að vera til í rétt
rúm 18 ár, er ég algjörlega búin að sjá að það sé ótrúlega óraunhæf
ósk. Boohoo, sama hversu sorglegt það er, þá er það satt, og mun
vera satt svo lengi sem maðurinn verður við lýði. Af hverju ekki að
reyna að beita sér fyrir því að allir verði jafnir? Fór fyrst að
velta þessu fyrir mér fyrir alvöru á laugardaginn. Horfði á Hotel
Rwanda, og fjúff... Ég er orðin aðeins harðari en ég var, og er
nánast hætt að grenja yfir myndum (að Notebook fráskilinni), en já,
ég bara hágrét með meðfylgjandi ekkasogum í gegnum alla myndina.
Mér blöskraði margoft við þá tilhugsun að Vesturlöndin aðhöfðust
ekkert til að bjarga blásaklausu fólki frá dauða! Og það fyrir 11
árum síðan! Af hverju ætli það sé? Nú þeir eru að hjálpa Írak
og svona. Þeir eru líka með olíuauðlindir. En hvað eiga íbúar
Rúanda? Ekki neitt. Allavega, nóg um þetta mál að þessu sinni.
Þetta áhorf fékk mig til að verða harðákveðin í því að verða
stjórnmálakona og redda heiminum frá glötun. Who's with
me?!?!
Ég mæli með því fyrir alla að
horfa á eftirtaldar myndir:
  
Allar þessar myndir segja
sögu manns sem stóð ekki á sama um stöðu þjóðar sinnar. Allar með
tölu myndir upp á 10,5 í mínum huga. Ótrúlega vel leiknar og
stórkostlegar myndir. Verðlaunamyndir. Ætla að horfa á Schindler's
List og Gandhi um helgina, hafið samband ef þið hafið
áhuga.
Jæja þetta er nóg af efni til
að hugsa um í bili, förum öll út að hoppípolla.
Ást.,
Elín Inga xoxo
»
21.09.2005 21:04:00 / elininga
Einmitt,
einmitt...
Veit ekkert af hverju ég er að nenna þessu. En jájá.
Þannig er mál með vexti að ég er að þjálfa körfu. Stelpur í 4.
bekk. Og ég fór að hugsa. Ég held að ég hafi byrjað í körfunni í 5.
eða 6. bekk. Allavega vorum við Ísl.meistarar í 6. bekk (syngja í
hálfleik, allar með eins klippingu!). Og já. Ég fór semsagt að spá
í það. Þegar ég var svona að byrja. Þá voru Erla Reynis. og Marín
að þjálfa okkur. Minnir mig. Og mér fannst þær vera svo ótrúlega
stórar, og bara já, fullorðnar. Er ég orðin fullorðin þá af því ég
var að þjálfa? Ég hef einmitt líka tekið eftir þessu í bíóinu, þá
eru krakkar kannske að tala saman um hvað þeir eiga að kaupa. Og
svo segir annar krakkinn: "Spurðu konuna hvað það kostar." Haha ég
er ekkert kona. Séns. Verð kona svona 30 ára.
Málið er semsagt að ég er skíthrædd við að vera að eldast. Þótt að
þetta sé það náttúrulegasta við lífið. Þá er e-ð sem mér líkar ekki
við það að verða fullorðin. Gaman að vera krakki og vera asnalegur.
Ætla bara að vera asnaleg ennþá, en kannske ekkert krakki.
Hmm, þetta var speki dagsins, því ég verð opinberlega fullorðin
eftir viku. 18 ára. Fjúff. Svolítið mikið. Svo getur maður bara
farið að kjósa 8. október. Eruð þið, fólk sem er komin með
kosningaaldur, farin að velta fyrir ykkur hvort þið viljið sameina
Garð, Sandgerði og Reykjanesbæ? Wá fyrsta skipti sem ég skrifa
Reykjanesbær líklegast. En jájá, það er gaman að geta kosið, og
ætla ég að sjálfsögðu að mæta á kjörstað.
Lag dagsins er lagið #1 Crush með Garbage. Er úr Romeo + Juliet,
sem er eitt allra besta Soundtrack sem ég hef
heyrt.
I would die for you
I would die for you
I've been dying just to feel you by my side
To know that you're mine
I will cry for you
I will cry for you
I will wash away your pain with all my tears
And drown your fear
I will pray for you
I will pray for you
I will sell my soul for something pure and true
Someone like you
See your face every place that I walk in
Hear your voice every time that I'm talking
You will believe in me
And I will never be ignored
I will burn for you
Feel pain for you
I will twist the knife and bleed my aching heart
And tear it apart
I will lie for you
Beg and steal for you
I will crawl on hands and knees until you see
You're just like me
Violate all the love that I'm missing
Throw away all the pain that I'm living
You will believe in me
And I can never be ignored
I would die for you
I would kill for you
I will steal for you
I'd do time for you
I will wait for you
I'd make room for you
I'd sink ships for you
To be close to you
To be part of you
Cause I believe in you
I believe in you
I would die for you
Get ekki ímyndað mér að líða svona gagnvart
einhverjum. Maybe one day.
Will you be my
Romeo?
»
15.09.2005 15:51:17 / elininga
of the world kannske?
Vildi að það væri hægt.
Jahér,, þá er ég komin heim heil að höldnu. Ég spyr mig oft hvort
ég sé komin "heim". Ansi erfitt að segja. Líf mitt hefur verið ansi
skrýtið eftir að ég kom heim, og margt merkilegt og ómerkilegt
hefur drifið á mína dag. Og ég nenni ekki að vera að segja frá því,
því að fólkið sem skoðar þessar síðu, er fólk sem veit hvað ég er
búin að vera gera, og fólk sem þekkir mig. Allavega vona ég
það.
Ég hef ákveðið að nota þessa síðu til þess að tala um hluti sem
skipta mig miklu máli, og fá mikið pláss í mínum stútfulla
heila.
Ég þjáist af útþrá af verstu gerð. Hafði loksins kjark til þess að
hringja í einn besta vin minn úti áðan. Mér fannst ég ekki vera
búin að koma mér nógu vel fyrir hér heima, til þess að geta talað
við hann án þess að grenja allan tímann. Höfum bara verið í e-mail
bandi. Svo ópersónulegt og nýaldarlegt. En það var... Yndislegt að
tala við hann. Ég er harðákveðin í að fara aftur út.... Eftir
nokkur ár. Fara í háskóla. Og njóta þess að gera asnalega hluti. Og
bara lifa. Ég passa ekki inn í Ísland. Ekki lengur allavega.
Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki keypt mér nýja Sigur
Rós diskinn. Er búin að bíða eftir þessu augnabliki í gífurlega
langan tíma. Fjúff. Og hann stenst svo vel undir væntingum sem ég
hafði gefði mér til hans. Hef aldrei á ævinni heyrt jafn
heilsteyptan disk. Og ég hef alveg heyrt marga diska. En hann
flýtur bara alveg í gegn, og maður tekur varla eftir því að það
skiptist um lag. Þessi diskur kom eins og kallaður,, Ég er búin að
vera gífurlega bitur og inni í sjálfri mér undanfarið. En er löguð
núna.
Ogh það er allt svo skrýtið. Maður heldur alltaf að maður sé með
þvílíka stjórn á hlutunum (þar með talið tilfinningum sínum). Og
svo kemst maður auðvitað að því að við erum öll peð sem höfum
ekkert vald.
Rosalega biturt blogg. Ég þurfti svo innilega á þessu að
halda.
En ég ætla að enda þetta á nokkru sniðugu sem mér tókst að gera í
gær. Ég var í vinnunni, bestu vinnu í heimi, vinnupartý um helgina
og læti! En jæja.. Og ég var að hlusta á Takk... eins og alltaf. Og
datt í hug að skrifa niður textann við uppáhaldslögin mín. Sem eru
Hoppípolla, Sæglópur og Glósóli. Og öll hin auðvitað. En jáá..
endilega látið mig vita ef það er e-ð sem ykkur finnst mega laga í
textanum. Ég er búin að rýna þvílíkt í þetta. Ásamt Evu og Dögg. Og
vona að þetta sé rétt...........
Brosandi
Hendumst í
hringi
Höldumst í
hendur
Allur heimurinn
óskýr
Nema þú
stendur
Rennblautur
Allur
rennvotur
Engin
gúmmístígvél
Hlaupandi í
okkur
Vill springa út
úr skel
Vindur
í
Og útilykt af hárinu
þínu
Ég lamdi eins fast og
ég get
Með nefinu
mínu
Hoppípolla
Allur
rennvotur
Rennblautur
Í engum
stígvélum
OG ÉG FÆ
BLÓÐNASIR (Hoppípolla)
En ég stend
alltaf upp (Hoppípolla)
Við sjáumst
tvö
Í sjálfum
mér
OG ÉG FÆ
BLÓÐNASIR
Og ég stend
alltaf upp
Við sjáumst
tvö
Hoppípolla (til
endaloka)
TAKK & Bless
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|